FH og Fram leika um fyrsta sætið

Framarar höfðu betur gegn Gróttu í gærkvöldi - Mynd: Eyjólfur Garðarsson
FH og Fram unnu leiki sína á öðrum keppnisdegi fjögurra liða handboltamótsins í íþróttahúsi Gróttu á Seltjarnarnesi í gærkvöld.
FH-ingar mættu Gróttu og höfðu að lokum sex marka sigur 31-25 en Gróttumenn voru yfir í hálfleik 16-15. Þráinn Orri Jónsson skoraði tíu mörk fyrir Gróttu og Aron Valur Jóhannsson fjögur mörk en þeir Bjarki Jónsson, Ragnar Jóhannsson og Ólafur Gústafsson gerðu allir fimm mörk fyrir FH.
Fram sigraði svo Aftureldingu 19-17 en Framarar höfðu undirtökin allan leikinn og voru yfir í hálfleik 9-5. Sigurður Þorsteinsson og Stefán Þórsson skoruðu báðir sex mörk fyrir Fram en Jóhann Jóhannsson var með fjögur mörk fyrir Aftureldingu og Hilmar Stefánsson gerði þrjú mörk.
Þriðji og síðasti keppnisdagur mótsins er í dag. Grótta og Afturelding mætast klukkan 10:30 í leik um þriðja sætið í mótinu. Hvorki FH né Fram hafa tapað leik í mótinu og mætast því í hreinum úrslitaleik um fyrsta sætið klukkan 12:15.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














