FH eða ÍBV í Laugardalshöll?

vestmannaeyjar.123.is ÍBV tekur á móti FH í undanúrslitum í bikarkeppni kvenna í kvöld.

ÍBV tekur á móti FH í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld.

Sigurliðið mætir annað hvort Val eða Stjörnunni sem eigast við í hinum undanúrslitaleiknum á morgun á Hlíðarenda. ÍBV hefur spilað vel í efstu deildinni á þessu tímabili og er í 3. sæti með 12 stig, á meðan FH er í botnsætinu með þrjú stig. Leikurinn hefst klukkan 18 í íþróttahúsinu í Vestmannaeyjum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku