FH á toppnum

FH-ingar eru komnir í toppsætið eftir leiki kvöldsins - Mynd: Eva Björk
FH komst í kvöld í efsta sæti úrvalsdeildar karla í knattspyrnu eftir 5-2 sigur á Selfossi á heimavelli sínum í Kaplakrika. Atli Guðnason skoraði þrjú mörk fyrir FH í leiknum og Guðjón Árni Antoníusson tvö mörk en Tómas Leifsson og Dofri Snorrason gerðu mörk Selfyssinga.
Breiðablik sigraði Val 4-3 á Hlíðarenda. Kristinn Jónsson, Þórður Steinar Hreiðarsson, Olgeir Sigurgeirsson og Ben Everson skoruðu mörk Blika en Kolbeinn Kárason gerði tvö mörk fyrir Val og Rúnar Már S. Sigurjónsson eitt mark.
Garðar Bergmann Gunnlaugsson skoraði bæði mörk ÍA sem lagði Fylki 2-1 á Akranesi. Magnús Þórir Matthíasson var með mark Fylkismanna.
Þá skildu Grindavík og Fram jöfn 2-2 á Grindavíkurvelli. Iain James Williamsson og Hafþór Ægir Vilhjálmsson gerðu mörk heimamanna en Kristinn Ingi Halldórsson skoraði bæði mörk Framara.
Leikur Stjörnunnar og Keflavíkur er enn í gangi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is











