Ferðum til Heathrow aflýst

Heathrow-flugvöllur. Mynd: Nordic Photos/AFP.

Heathrow-flugvöllur í Lundúnum hefur aflýst nánast þriðja hverju flugi sem fyrirhugað var að myndi lenda þar á morgun.

Ástæðan er að gert er ráð fyrir allt að 15 sentímetra djúpum snjó, kulda og þoku. Jafnvel er talið að aflýsa þurfi fleiri flugferðum. Listi yfir þau flug sem á að aflýsa verður birtur á heimasíðu flugvallarins klukkan sex síðdegis.

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair gerir ekki ráð fyrir því að fella þurfi niður flug Icelandair til Lundúna á morgun. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Evrópa, Erlent, Veður

Tilkynna um bilaða upptöku