Prenta frétt

Senda frétt Horfa á frétt

Fellabakarí skemmdist í eldi-myndir

Eins og sést er starfsmannaaðstaðan sem var í risi hússins brunnin til kaldra kola. Talið er að þar hafi eldurinn komið upp.
Eins og sést er starfsmannaaðstaðan sem var í risi hússins brunnin til kaldra kola. Talið er að þar hafi eldurinn komið upp.
Fellabakarí á Fljótsdalshéraði stórskemmdist í bruna snemma í morgun. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins. Miklar skemmdir urðu á húsinu vegna elds, vatns og reyks. Enginn var í húsinu þegar eldurinn kom upp og engin slys urðu á fólki.

Útkall barst klukkan hálf 7 í morgun. Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri brunavarna á Austurlandi býr þar skammt frá og var kominn eftir tvær mínútur. Hann segir að þá hafi eldtungur staðið upp úr þakinu og ákvað hann að kalla eftir aðstoð frá Fjarðabyggð, Seyðisfirði, Vopnafirði og björgunarsveitum. Búið var að slökkva eldinn um klukkan hálf tíu í morgun.

Baldur Pálsson segir að talið sé að eldurinn hafi komið upp í kaffistofu starfsfólks í risi hússins. Hann breiddist síðan niður á neðri hæðina. Tvær eldvarnarhurðir vörnuðu því að eldur kviknaði í búð og framleiðslurými. Brynjar Atli Hjörleifsson bakari segir að bið verði á því að brauð verði bökuð í Fellabakaríi. Næsta bakarí sé á Höfn í Hornafirði.

Hér má horfa á myndir teknar á vettvangi og sjá viðtal við Baldur Pálsson slökkviliðsstjóra og Brynjar Atla Hjörleifsson bakara.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

3. september 2010

Streymiþjónusta