Fékk ótryggt lán og borgaði tryggt

Kaupþing veitti að því er virðist eignalausu félagi með enga starfsemi 50 milljóna dollara lán án nokkurra trygginga. Það félag notaði peninginn svo til að greiða upp lán sem Al-Thani hafði fengið og var í persónulegri ábyrgð fyrir. Þetta er eitt ákæruatriðanna gegn Kaupþingsmönnum.

Fyrsti ákæruliður snýr að fimmtíu milljóna dollara láni sem félagið Brooks Trading, sem skráð var á Tortola, fékk í september 2008. Þar er Hreiðar Már Sigurðsson ákærður fyrir umboðssvik og Magnús Guðmundsson fyrir hlutdeild í sömu brotum. Brooks Trading var í eigu Mink Trading Corp sem aftur var í eigu Sjeik Mohamed bin Khalifa Al Thani. 

Björn Þorvaldsson saksóknari segir í ákæru að ekki hafi legið fyrir hvernig Brooks hygðist nota fjármunina sem voru félaginu til frjálsrar ráðstöfunar. Það hafi komið skýrt fram í því að 8. október hafi lánsfénu verið ráðstafað til Íslands í flýti og því umbreytt í íslenskar krónur á genginu 256 krónur fyrir hvern Bandaríkjadal og andvirðið notað til að endurgreiða bróðurpartinn af láni bankans til félagsins Serval Trading Group Corp. Það félag var einmitt í eigu Al Thanis, líkt og Brooks Trading. Munurinn á lánunum var sú að Al Thani hafði gengist í persónulega ábyrgð fyrir endurgreiðslu á láni Kaupþings til Serval Trading en lánið til Brooks var án trygginga.

Í ákæru segir að Hreiðar Má hafi skort heimild til að samþykkja lánveitinguna, lánið hefði þurft að fara fyrir lánanefnd en gerði það ekki. Þá hefði það verið andstætt innri reglum bankans að veita Brooks, „nýstofnuðu eignalausu félagi með takmarkaða ábyrgð“ á undanþágulista bankans peningamarkaðslán án trygginga. Slíkt hafi einungis verið heimilt að veita fjármálafyrirtækjum með traust lánshæfismat. Magnús er ákærður fyrir að hafa átt veigamikinn þátt í umboðssvikum Hreiðars Más, haft milligöngu um samningsgerð við Al Thani og sagt ap tölvupóstar bendi til þess að hann hafi útvegað félag sem skyldi taka við láninu.

(pdf)

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku