Fékk byssukúlu í pósti
Fyrst birt: 27.01.2012 20:28, Síðast uppfært: 27.01.2012 20:28

Anton Ferdinand og John Terry áttu í orðaskiptum í leik liðanna fyrr í vetur.
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Anton Ferdinand, leikmaður enska knattspyrnuliðsins Queens Park Rangers, hafi fengið byssukúlu senda í pósti í dag.
QPR leikur gegn Chelsea í ensku bikarkeppninni á morgun og þar mætast Ferdinand og John Terry en skammt er síðan Ferdinand sakaði Terry um kynþáttaníð í sinn garð. Ferdinand mun hafa ráðið öryggissveit sér og fjölskyldu sinni til verndar fram yfir leik morgundagsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







