Farið fram á gæsluvarðhald

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir manni á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið konu að bana á heimili sínu í Hafnarfirði. Maðurinn er nú frammi fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness. Búast má við að einnig verði farið fram á að maðurinn sæti geðrannsókn.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku