Fálki fær aðhlynningu

Fálkinn var ataður í grút þegar hann kom í Húsdýragarðinn.
Húsdýragarðurinn hefur tekið að sér fálka til aðhlynningar. Fuglinn var ataður í grút og nánast ófleygur þegar hann var handsamaður skammt frá Grundarfirði í gær.
Hilmar Össuarson, dýrahirðir í Húsdýragarðinum, segir að fálkinn hafi ef til vill fengið í sig grútinn af selshræ, eða kannski komist í síld eða annan feitan fisk. Við að hann fær í sig grút verða fjaðrirnar óhreinar. Hann missir þá flughæfnina og þar með veiðihæfni og allar forsendur til að lifa af nema honum sé hjálpað.
Fálkinn verður þrifinn með sérstakri sápu sem er gerð til þess að ná óhreinindum af fuglum. Hilmar er vongóður um að meðferð heppnist vel og hægt verði að sleppa fálkanum bráðlega. Sú verður reyndar raunin í flestum tilfellum.
„Þetta eru afskaplega sterkir fuglar ef þeir eru ekki langt leiddir af hungri,“ segir Hilmar. „Þessi fugl er ekki í slæmu ásigkomulagi að öðru leyti en því að hann er óhreinn.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







