Fagnar hertri öryggisgæslu



  • Prenta
  • Senda frétt

Sigurður Torfi Guðmundsson formaður Fangavarðafélags Íslands fagnar því að efla eigi öryggisgæslu á Litla-Hrauni.Hann segir að einnig sé mikilvægt að huga að öryggi í öðrum fangelsum. Til að mynda sé óforsvaranlegt að fangaverðir séu einir á næturvakt.

Það tíðkist á Kvíabryggju og í fangelsinu á Akureyri. Fangelsismálayfirvöld ætla að verja 50 milljónum króna á þessu ári í að efla öryggismál á Litla-Hrauni. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar síðar í sumar. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku