Söngvakeppnin hefst um helgina

Hvaða lag keppir fyrir Ísland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Aserbaídjan í maí? Það er stóra spurningin.
Brynja Þorgeirsdóttir ætlar til gamans að fela tvær til þrjár bókmenntatilvitnanir í kynningu úrslitalaganna í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012, sem hefst laugardagskvöldið 14. janúar. Brynja verður kynnir keppninnar í fyrsta skipti en stundar um leið nám í bókmenntafræði. Rætt var við Brynju og Helga Jóhannesson í Síðdegisútvarpinu.
Getraun Söngvakeppni Sjónvarpsins hófst í dag á síðu keppninnar. Þar verður vikulega fram að úrslitakvöldinu birt spurning sem tengist þátttöku Íslendinga í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Í verðlaun eru miðar á úrslitakvöld Söngvakeppninnar sem verður 11. febrúar og gjafabréf frá ferðaskrifstofunni Vita.
Getraunavefur Söngvakeppninnar.
Söngkonan Íris Hólm ríður á vaðið í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012 og verður fyrst á svið á laugardagskvöldið með lagið Leyndarmál. Næst er lagið Rýtingur, þriðja Mundu eftir mér, fjórða Stattu upp og loks Við hjartarót mína. Tvö laganna komast áfram í úrslit.s
Sveitin Fatherz'n'Sonz flytur lag þeirra Gests Guðnasonar og Hallvarðs Ásgeirssonar, Rýtingur. Lagahöfundarnir verða þar sjálfir fremstir í flokki ásamt einvala liði hljóðfæraleikara. Greta Salóme flytur sjálf eigið lag, Mundu eftir mér, ásamt Jónsa. Hljómsveitin Blár Ópal flytur lag þeirra Ingólfs Þórarinssonar og Axels Árnasonar, Stattu upp. Heiða Ólafsdóttir lýkur kvöldinu með flutningi sínum á lagi Árna Hjartarsonar, Við hjartarót mína.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







