Gleðibankabókin kemur út
Fyrst birt: 12.01.2012 18:33, Síðast uppfært: 12.01.2012 18:33

Gleðibankabókin
Nú fer í hönd Evróvision árstíminn og því kærkomið að fá í hendurnar nótna- og söngbókina Gleðibankabókina, eftir Gylfa Garðarson.
Í bókinni er að finna alls konar fróðleik um hlut Íslands í keppninni og nótur og gítargrip fyrir öll 24 íslensku sigurlögin frá 1986 og fram á þennan dag ásamt nöfnum flytjenda, þula og þeirra sem sáu um förðun, föt, sviðssetningu og fleira.
Gylfi heimsótti Síðdegisútvarpið en í bókinni kemur líka fram í hvaða sæti Ísland hafnaði hvert ár og með hvað mörg stig. Við hvert lag er litmynd af aðalflytjendum í Eurovision-útsendingu hvers árs.
Jónatan Garðarsson ritaði forsöguna og ágrip um keppni hvers árs.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







