Getum hætt við segir útvarpsstjóri

Páll Óskar Hjálmtýsson hvatti Pál Magnússon útvarpsstjóra í Síðdegisútvarpinu í dag til að taka formlega afstöðu gegn þáttöku Íslendinga í Evóvisjón. Það gæti útvarpssjóri gert á fundi sem hann mun eiga bráðlega með norrænum stjórnendum inn EBU, aðstandanda Evróvisjón.

Páll Óskar vildi að útvarpssjóri hvetti líka norræna samstarfsmenn sína til að gera það sama. Norrænum þjóðirnar myndi þá allar afþakka þáttöku í keppninni í Bakú í Aserbadjan í vor og mótmæla mannréttindabrotum í landinu. Mannréttindabrot í tengslum við byggingu keppnishallarinnar hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarið.

Páll Magnússon sem mætti ásamt Páli Óskari í Síðdegisútvarpið sagði að það væri mögulegt að hætta við þótt hann tæki ekki afstöðu núna sjálfur. Páll Óskar sagði að mannréttindi yrðu að vera í fyrsta sæti en Evróvisjón í öðru. Það sé ógeðsleg tilhugsun að vera ,,glamúrös" í kristalshöll sem er byggð á jafn ljótum grunni og með jafn viðbjóðslegri forsögu. Í fréttum er sagt frá því að heimili fátækra hafi verið rifin og þeim vísað á guð og gaddinn til að hægt sé að reisa tónleikahöllinn sem hýsir Söngvakeppnina í ár. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sagði í samtali við Vísi í dag rétt að RÚV og aðrar evrópskar sjónvarpsstöðvar ræði málið á sínum vettvangi. Sjálf vill hún ekki taka bein afstöðu til málsins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku