Evrópskir hlutabréfamarkaðir hækka

Hlutabréf hækkuðu um alla Evrópu.


  • Prenta
  • Senda frétt

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í gærkvöldi að stofna björgunarsjóð fyrir banka evruríkjanna, upp á 120 milljarða evra. Með þessari aðgerð á þó ekki að auka skuldir ríkjanna sjálfra. Leiðtogarnir ræddu skuldavanda Evrópu á þrettán klukkustunda löngum fundi í Brussel.

Þá samþykktu þeir að setja á laggirnar sameiginlegt eftirlitskerfi fyrir evrusvæðið. Talið er að það gæti þó tekið allt að eitt ár að safna fé í sjóðinn en leiðtogarnir ætla að hefja vinnu við það níunda júlí. Um leið og fréttist af samkomulagi leiðtoganna tók evran að styrkjast gagnvart Bandaríkjadollar og jeni og hafa miklar hækkanir verið á evrópskum hlutabréfamörkuðum í morgun.

Breska FTSE vísitalan hækkaði um 1,7%, hin þýska DAX um 2,4% og CAC í París um 2,9%. Þá hækkuðu hlutabréf á Spáni um  4,1%  og á Ítalíu um ríflega þrjú prósent.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku