Everton og Tottenham áfram í bikar

Heiðar Helguson og félagar í QPR taka á móti Chelsea í 32-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í dag
Everton og Tottenham urðu fyrst liða til þess að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gærkvöld. Everton vann Fulham 2-1 á heimavelli eftir að hafa lent undir 1-0 og Tottenham lagði Watford 1-0 á útivelli með marki rétt undir lok fyrri hálfleiks.
Fjórtán lið munu bætast í hóp Everton og Tottenham um helgina. Tólf leikir eru á dagskrá í dag og tveir á morgun. Í dag mætast meðal annars Queens Park Rangers og Chelsesa og á Anfield Road tekur Liverpool á móti Manchester United í stórleik 32-liða úrslitanna. Á morgun fær Arsenal lið Aston Villa í heimsókn.
Laugardagur:
12:00 Queens Park Rangers - Chelsea
12:45 Liverpool - Manchester United
15:00 Blackpool - Sheffield Weddnesday
15:00 Bolton - Swansea
15:00 Derby - Stoke
15:00 Hull - Crawley
15:00 Leicester - Swindon
15:00 Millwall - Southampton
15:00 Sheffield United - Birmingham
15:00 Stevenage - Notts County
15:00 West Bromwich Albion - Norwich
17:15 Brighton - Newcastle
Sunnudagur:
13:30 Sunderland - Middlesbrough
16:00 Arsenal - Aston Villa
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







