Persónuskilríki stórmál
Fyrst birt: 08.02.2012 17:41, Síðast uppfært: 08.02.2012 19:37

Er hægt að tryggja öruggar kosningar án þess kjæósendur geri grein fyrir sér.
Yfirvöld í Suður-Karólínu hafa höfðað mál á hendur bandaríska dómsmálaráðuneytinu sem kom í veg fyrir gildistöku nýrra laga í ríkinu um notkun persónuskilríkja á kjörstað. Ráðuneytið segir að verði kjósendur skyldaðir til að sýna skilríki með mynd til að mega kjósa, sé verið að leggja stein í götu minnihlutahópa. Deilur af þessu tagi eru ekki bundnar við þetta eina ríki eins og Sveinn Helgason komst að. Hann segir frá í Speglinum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







