Erill í Vestmannaeyjum vegna skemmtana



  • Prenta
  • Senda frétt

Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt vegna skemmtanahalds í aðdraganda Þjóðhátíðar, sem verður sett í dag, föstudag.

Að sögn lögreglu voru nokkrir færðir á lögreglustöð vegna ölvunar, óspekta og minniháttar líkamsárása. Í nótt var haldinn árlegur dansleikur, svokallað Húkkaraball, í Týsheimilinu við Hásteinsvöll.

Í Reykjavík var nóttin róleg, að sögn lögreglu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku