Ennþá fimbulkuldi í Austur-Evrópu

Vetrarveðrið gerir Rúmenum lífið leitt. Mynd: Nordic Photos/AFP.

Á sjötta hundrað dauðsfalla er nú rakið til kuldanna í Evrópu. Ástandið er enn langverst í austanverðri álfunni.

Enn er víða neyðarástand vegna kuldanna í Austur-Evrópu. Það á ekki síst við um Úkraínu og Rússland. Í Úkraínu hefur upphituðum tjöldum verið komið fyrir í Kænugarði. Vitað um 130 sem hafa látist í Úkraínu. „Flestir þeir sem hafa frosið til bana hafa verið drukknir. Allir vita að þú ættir ekki að drekka og fara út í kuldann en samt gerir fólk það,“ segir útigangsmaðurinn Maksim í Kænugarði. 

Dóná er frosin og í Austurríki, Búlgaríu, Króatíu og Serbíu og Ungverjalandi er skipaumferð á ánni bönnuð. Í Rúmeníu muna heimamenn ekki eftir jafn miklum frosthörkum í næstum þrjá áratugi. „Ég hef ekki séð Dóná ísi lagða síðan 1984-1985. En þá var meiri ís á fljótinu,“ sagði íbúi einn við Dóná. Rúmenar hafa enn ekki bannað siglingar á Dóna, en þær eru mjög erfiðar. Sumsstaðar er ísinn á ánni tuttugu sentimetra þykkur. Mörg skip eru föst í ísnum.

Víða í álfunni eru mikil snjóþyngsli og eru um sjötíu þúsund manns einangruð í sunnanverðri Serbíu. Þyrlur eru notaðar til að koma lífsnauðsynjum til fólks. Þarna er brunagaddur, í bænum Smederevska Palanka fór frostið niður í 28 gráður. Í grennd við Ancona á Ítalíu muna menn vart jafn mikla snjókomu. Þar hefur herinn verið kvaddur til hjálpar, lestarferðir ganga afar illa. Akstur bíla er bannaður nema þeir séu búnir keðjum.

En það er ekki bara í Evrópu þar sem vetrarkuldar og snjóþyngsli herja. Í Yamagata-héraði í Norður-Japan er snjóþykkt meir en fjórir metrar, sem er um tveimur metrum meira en í meðalári. Í Shanxi héraði í Kína má augljóslega fimbulkuldann á fossi í Gulá, þar sem úðinn frýs og grýlukerti og ís búa til tilkomumikla umgjörð um rennandi vatnið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Asía, Evrópa, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku