Enn allt í hnút í Aþenu

Enn er allt í hnút á viðræðunum í Grikklandi um niðurskurðarkröfur ESB og afskriftir ríkisskulda Grikkja.

Fundi Papademos, forsætisráðherra, með leiðtogum stjórnarflokkanna var í gær frestað til í dag en Papademos og Venizelos, fjármálaráðherra, funduðu fram á kvöld með fulltrúum þríeykisins svo kallaða, ESB, ASG og ECB. Venizelos sagði í gærkvöld að viðræðurnar væru erfiðar. Um leið og einum kafla væri lokað opnaðist annar. Lokafrestur stjórnarflokkanna til að fallast á niðurskurðarkröfurnar er liðinn og enginn veit hvað nú tekur við. Þríeykið krefst þess að stjórnin samþykki niðurskurðinn áður en næsti hluti aðstoðarinnar við Grikki, 130 miljarðar evra, verður greiddur út. Grikkir þurfa aðstoðina til að komast hjá greiðslufalli þegar lán upp á rúma 14 miljarða evra falla í gjalddaga í næsta mánuði.

Alls óvíst er hvort nægur tími sé til að ganga frá öllum málum tengdum aðstoðinni fyrir gjalddagann. Meðal annars þarf að leysa alls kyns lagaflækjur, margar stjórnir og nefndir verða að fá að segja sitt og í sumum evruríkjunum þurfa þjóðþingin að samþykkja aðstoðina. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku