Endurnýjað endurgreiðslukerfi til 2016
Fyrst birt: 04.07.2012 15:07, Síðast uppfært: 05.07.2012 12:51

Verkefni eins og Game of Thrones njóta góðs af endurgreiðslukerfinu.
Breytingatillögur íslenskra stjórnvalda á ríkisaðstoð til kvikmyndagerðar voru samþykktar af Eftirlitsstofnun EFTA í dag og gildistími aðstoðarkerfisins framlengdur til loka ársins 2016, en að óbreyttu hefði hann fallið úr gildi í desember á þessu ári.
Kvikmyndir þurfa að uppfylla ýmis skilyrði til að geta talist styrkhæfar samkvæmt svonefndu menningarlegu viðmiði en þau skilyrði sem íslensk stjórnvöld leggja til grundvallar eru í samræmi við fordæmi frá ESA og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og voru því samþykkt.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














