Endalok Ragnars seld

Flokkar: Innlent, Menning
Ragnar Kjartansson. Mynd/ÓJ


  • Prenta
  • Senda frétt

Endalokin, verk Ragnars Kjartanssonar sem hann vann á Feneyjatvíæringnum fyrir þremur árum hefur verið selt.

Kaupandinn er ítalskur listaverkasafnari og ásett verð var andvirði þrjátíu milljóna íslenskra króna. Endalokin eru 144 myndir sem Ragnar málaði á sex mánaða tímabili í Feneyjum af fyrirsætu í sundskýlu að drekka bjór. Hinn nýi eigandi ætlar að sýna verkin í Tórínó á Ítalíu í nóvember. Börkur Arnarson, eigandi i8 Gallerís sem sá um söluna, segir verðið eitt það hæsta sem fengist hefur fyrir íslenskt listaverk. Nánar var rætt við Börk í Morgunútvarpinu á Rás 2.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku