Embættismenn SÞ fordæma árásina

Bifreið í ljósum logum við ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Benghazi í gær. Mynd:Nordic Photos/AFP
Embættismenn hjá Sameinuðu þjóðunum fordæmdu í dag árásina í Benghazi í gær þar sem sendiherra Bandaríkjanna í Líbíu og þrír Bandaríkjamenn aðrir létu lífið.
Jeffrey Feltman, einn aðstoðarframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, sagði að samtökin beittu sér gegn öllum tilraunum til að koma höggi á eða gera lítið úr trú og trúarbrögðum og vísaði þar til myndarinnar um islam og spámanninn Múhameð, sem var tilefni árásarinnar, en ekki væri hægt að réttlæta þau ofbeldisverk sem framin hefðu verið í Benghazi í gær. Árásin undirstrikaði auk þess þá erfiðleika nýrra valdahafa í Líbíu við að treysta sig í sessi.
Ibrahim Dabbashi, sendiherra Líbíu hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði árásina skaða ímynd islams og stríða gegn hagsmunum líbísku þjóðarinnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














