EM-lag Rásar 2 „Gerum okkar besta“
Fyrst birt: 23.01.2012 15:08 GMT, Síðast uppfært: 24.01.2012 04:35 GMT

Valgeir Guðjónsson fagnar sextugsafmæli í dag, 23. janúar 2012. Í tilefni afmælisins og góðs gengis íslenska landsliðsins hefur Sighvatur Jónsson blandað saman bestu brotum úr lýsingum frá leikjum liðsins á EM í Serbíu við lagið „Gerum okkar besta“, sem Valgeir flutti með handboltalandsliðinu 1988.
Brotin eru frá lýsingum Einars Arnar Jónssonar og Þorkels Gunnars Sigurbjörnssonar, íþróttafréttamanna RÚV, frá sigurleik Íslendinga gegn Ungverjum í gær og fyrri leikjum mótsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







