Elton John að ná heilsu aftur
Fyrst birt: 26.05.2012 15:40, Síðast uppfært: 27.05.2012 11:03
Flokkar: Mannlíf

Mynd:Nordic Photos/AFP
Fjölmiðlafulltrúi breska tónlistarmannsins Eltons Johns segir líðan söngvarans ágæta en hann fékk alvarlega lungnasýkingu fyrir skömmu.
Sir Elton John, sem er orðinn hálfsjötugur, þurfti að aflýsa tónleikum í Las Vegas í vikunni vegna veikinda og var lagður inn á sjúkrahús í Los Angeles snemma á miðvikudagsmorgun.
Hann ku nú vera kominn heim til sín og þarf að taka það rólega á næstunni meðan hann jafnar sig. John og sambýlismaður hans, David Furnish, eiga 17 mánaða son, Zachary, sem þeir eignuðust með aðstoð staðgöngumóður.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













