Eldfjall sópar að sér verðlaunum

Rúnar sópar að sér verðlaunum fyrir kvikmyndina Eldfjall. Safmynd

Kvikmyndin Eldfjall var valin besta kvikmyndin á Eddunni í kvöld. Leikstjóri myndarinnar, Rúnar Rúnarsson, var valinn besti leikstjórinn og hlaut að auki verðlaunin fyrir besta handritið.

Theodór Júlíusson var svo valinn leikari ársins og Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona ársins fyrir frammistöðu sína í myndinni Eldfjall. Áður hafði myndin unnið til tíu verðlauna á erlendum kvikmyndahátíðum.

Vilhjálmur Knudsen hlaut heiðursverðlaun akademíunnar að þessu sinni.

 

Verðlaunahafar kvöldsins eru:
Kvikmynd ársins – Eldfjall
Leikið sjónvarpsefni ársins – Pressan 2
Heimildamynd ársins – Andlit norðursins
Leikstjóri ársins – Rúnar Rúnarsson
Áhorfendaverðlaun ársins – Þóra Arnórsdóttir
Leikari ársins í aðalhlutverki – Theodór Júlíusson
Leikkona ársins í aðalhlutverki – Margrét Helga Jóhannesdóttir
Handrit ársins - Rúnar Rúnarsson
Hljóð ársins – Gunnar Árnason fyrir Borgríki
Tónlist ársins – Hilmar Örn Hilmarsson fyrir andlit Norðursins
Skemmtiþáttur ársins – Áramótamót Hljómskálans
Sjónvarpsmaður ársins – Jóhannes Kr. Kristjánsson
Leikkona ársins í aukahlutverki – María Heba Þorkelsdóttir
Leikari ársins í aukahlutverki – Þorsteinn Bachmann
Barnaefni ársins – Algjör Sveppi og töfraskápurinn
Menningar- eða lífstílsþáttur ársins - Hljómskálinn
Frétta- eða viðtalsþáttur ársins – Landinn
Stuttmynd ársins – Skaði
Gervi ársins – Ragna Fossberg
Búningar ársins – Margrét Einars
Leikmynd ársins – Gunnar Karlsson
Kvikmyndataka ársins – Árni Filippusson
Klipping ársins – Elísabet Ronaldsdóttir
Heiðursverðlaun – Vilhjálmur Knudsen kvikmyndagerðarmaður

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku