Ekki uppreisn segir herinn
Fyrst birt: 07.02.2012 10:02, Síðast uppfært: 07.02.2012 10:59

Mohammed Nasheed í herfylgd á leið sinni að höfuðstöðvum hersins í morgun. Mynd: Nordic Photos/AFP.
Talsmaður hersins á Maldíveyjum á Indlandshafi segir við fréttastofu AFP að það sé rangt að þar hafi verið gerð uppreisn.
Hann segir að forsetanum, Mohamed Nasheed, hafi verið ráðlagt að segja af sér, hann hafi ekki verið neyddur til neins. Nasheed sagði af sér í morgun eftir að uppreisnarmenn úr lögregluliði landsins hertóku ríkisstjónvarpið. Forsetinn lýsti atburðunum sem uppreisn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Uppreisn á Maldíveyjum





