Ekið á stúlku á Akureyri

Frá Akureyri.

Ekið var á unga stúlku á Mýrarvegi á Akureyri rétt fyrir hádegi í dag. Stúlkan taldi í fyrstu að hún hefði ekki slasast og hélt áfram för sinni eftir að hafa rætt við ökumanninn. Seinna kom í ljós að stúlkan væri eitthvað slösuð.

Lögreglan á Akureyri óskar eftir að ná tali af ökumanninum, eldri manni sem talið er að hafi verið á rauðum Subaru.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku