Einar Daði fer vel af stað á EM



  • Prenta
  • Senda frétt

Einar Daði Lárusson úr ÍR byrjar vel í tugþrautakeppninni á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Finnlandi.

Þremur greinum er nú lokið en Einar Daði setti persónuleg met í kúluvarpi og 100 metra spretthlaupi og þá hafnaði hann í fimmta sæti í langstökki. Einar er í áttunda sæti eftir þrjár fyrstu greinarnar en nú stendur yfir keppni í hástökki og deginum lýkur svo á 400 metra hlaupi. Kúluvarparinn Óðinn Björn Þorsteinsson var hins vegar langt frá sínu besta í undanúrslitum í kúluvarpi í morgun og er úr leik í Helsinki. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku