Eiður í eyðimörkina?



  • Prenta
  • Senda frétt

Grískir fjölmiðlar halda því fram í dag að knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen sé leið til liðs í Sádí-Arabíu.

Eiður hefur leikið undanfarið með AEK í Grikklandi en meiddist illa í vetur og talið er að hann yfirgefi félagið, en Eiður er launahæsti leikmaður AEK, sem á miklum fjárhagsörðugleikum. Framtíð Eiðs er því í mikilli óvissu en talið er að nokkur lið í Miðausturlöndum, auk liða á Bretlandseyjum, hafi áhuga á því að fá leikmanninn í sínar raðir. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku