Eastwood styður Romney
Fyrst birt: 04.08.2012 10:21, Síðast uppfært: 04.08.2012 10:21

Leikarinn og leikstjórinn Clint Eastwood hefur lýst yfir stuðningi við forsetaframboð repúblikanans Mitt Romney. Eastwood tók þátt í fjársöfnun fyrir framboðið í Idaho í gærkvöld þar sem 325 gestir mættu í kvöldverðarboð til heiðurs Romney.
Ætla má að gestirnir hafi verið auðugir þar sem þeir styrktu Romney um samtals meira en tvær milljónir dollara eða tvö hundruð og fjörutíu milljónir íslenskra króna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














