Dularfulli pakkinn opnaður

Dularfulli norski pakkinn opnaður. Mynd: Skjáskot af VGTV.


  • Prenta
  • Senda frétt

Loksins hafa fengist svör við því hvað leyndist í dularfullum pakka sem bæjaryfirvöld í Sel í Noregi fengu afhentann fyrir tæpum hundrað árum. Johan Nygaard, þáverandi bæjarstjóri í Sel útbjó pakkann árið 1912 og afhenti hann gegn því skilyrði að hann yrði fyrst opnaður í dag, hundrað árum síðar.

Pakkinn er 3,1 kíló, 40 sentímetra langur og 28 sentímetra breiður. Kjell Volheim, safnvörður í Guðbrandsdal, var vægast sagt spenntur þegar hann og bæjarstjórinn í Sel opnuðu pakkann síðdegis í dag. Í ljós kom það sem virðist vera fáni og fagurlega saumuð skrautklæði auk ýmissa skjala, bréfa og skeyta. Sagnfræðingar eiga eftir að skoða innihaldið betur til að meta gildi þess sem í pakkanum var.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku