Dúett Patti Smith og Russell Crowe
Fyrst birt: 19.08.2012 02:09, Síðast uppfært: 19.08.2012 10:52
Flokkar: Innlent

Patti Smith og Russell Crowe tóku laufléttan dúett fyrir áhorfendur í miðborg Reykjavíkur í dag, laugardag. Víst er að söngurinn á eflaust eftir að vekja heimsathygli enda ekki á hverjum degi sem tvær slíkar ofurstjörnur taka lagið saman á Menningarnótt í Reykjavík.
Það var borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, sem vakti athygli á myndbandinu sem finna má á You Tube en það má sjá hér að neðan. Lagið er einn frægasti slagari Patti Smith og heitir Because the Night.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













