Dögun meistari fimmta árið í röð

Flokkar: Íþróttir
Dögun er fimmfaldur Íslandsmeistari


  • Prenta
  • Senda frétt

Áhöfnin á Dögun varð Íslandsmeistari í kjölbátasiglingum fimmta árið í röð eftir sigur á Íslandsmótinu sem lauk í gær en siglt var á Skerjafirði og var mótið í umsjá Ýmis.

Tvær umferðir voru sigldar á föstudag og voru bátarnir Dögun og Xena jafnir og efstir að þeim loknum en báðir bátar sigla fyrir siglingaklúbbinn Brokey. Dögun vann svo allar fjórar umferðirnar í gær og tryggði sér öruggan sigur á mótinu en Xena hafnaði í öðru sæti.

Verðlaunaafhending verður í dag klukkan 16.00 í félagsheimili Ýmis.

Heildarúrslit má sjá hér.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku