Djokovic vann Opna ástralska mótið

Novak Djokovic

Novak Djokovic frá Serbíu vann Spánverjan Rafael Nadal í úrslitum á Opna ástralska meistaramótinu í tennis í dag en Djokovic vann mótið einnig á síðasta ári.

Djokovic vann þrjú sett gegn tveimur settum Nadal 5-7, 6-4, 6-2, 6-7 og 7-5 í leik sem tók 5 klukkustundir og 53 mínútur og er það lengsti úrslitaleikur sem háður hefur verið í sögu mótsins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Tennis, Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku