Djokovic mætir Nadal í úrslitum

Novak Djokovic er kominn í úrslit á Opna ástralska meistaramótinu í tennis

Serbneski tenniskappinn Novak Djokovic tryggði sér sæti í úrslitum á Opna ástralska meistaramótinu í tennis í dag þegar hann lagði Bretann Andy Murray í fimm settum 6-3, 3-6, 6-7, 6-1 og 7-5 í undanúrslitum.

Djokovic, sem er í efsta sæti heimslistans, mætir Spánverjanum Rafael Nadal, sem er í öðru sæti listans, í úrslitum á sunnudaginn kemur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Tennis, Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku