Deutsche Bank ræður leyniþjónustumann
Fyrst birt: 07.02.2012 11:19, Síðast uppfært: 07.02.2012 13:23

Ernst Uhrlau, fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar. Mynd: Nordic Photos/AFP.
Ernst Uhrlau, fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar, hefur verið ráðinn sem ráðgjafi hjá Deutsche Bank. Der Spiegel greinir frá þessu.
Uhrlau mun aðstoða þýska bankann við að gera alþjóðlegt áhættumat. Uhrlau, sem er 65 ára, var ráðinn yfirmaður leyniþjónustunnar 2006 og var einnig helsti ráðgjafi núverandi stjórnar í öryggismálum. Hann lét af störfum fyrir aldurs sakir um síðustu áramót. Uhrlau komst í fréttirnar þegar hann keypti persónuupplýsingar um grunaða skattsvikara. Gögnunum hafði verið stolið frá erlendum bönkum. Á grundvelli þeirra voru háttsettir menn dæmdir í sektir og fangelsisvist fyrir að skjóta fé undan skatti.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







