McCain krefst aðgerða

Bandaríkin eiga að vera tilbúin að beita herstyrk sinn í háloftunum til að vernda almenna borgara í Sýrlandi og styrkja stöðu uppreisnarmanna, sagði John McCain öldungadeildarþingmaður á fundi í Washington.
Barack Obama Bandaríkjaforseti þrýsti á Vladimir Putin forseta Rússlands að láta af stuðningi við stjórnvöld í Sýrlandi þegar forsetarnir tveir hittust á fundi G-20 ríkjanna í Mexíkó í gær. Á sama tíma hvatti John McCain öldungadeildarþingmaður og keppinautur Obama um forsetaembættið árið 2008 til þess á fundi í Washington að Bandaríkjastjórn beitti sér með afgerandi hætti til að styrkja stöðu uppreisnarmanna í Sýrlandi.
Sveinn Helgason hlustaði á McCain sem gagnrýndi Bandaríkjaforseta harkalega fyrir aðgerðaleysi - hann sé ekki í forystu fyrir því að koma Assad Sýrlandsforseta frá völdum. Sveinn segir frá í Speglinum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













