Dauði Gary Speed mögulega slys

Gary Speed
Talið er mögulegt að Gary Speed, fyrrum þjálfari karlalandsliðs Wales knattspyrnu, hafi jafnvel látist af slysförum í nóvember á síðasta ári en ekki fyrirfarið sér eins og áður var talið.
Þetta er niðurstaða réttarlæknisins Nicholas Rheinberg sem bar vitni í réttarrannsókn á andláti Speed en dánarorökin var henging. Rheinberg viðraði þann möguleika að Speed hefði látist af slysförum en ekki fyrirfarið sér.
Eiginkona Speed bar einnig vitni fyrir réttinum þar sem fram kom að Speed hefði nokkrum dögum fyrir andlát sitt sent henni skilaboð þess efnis að hann íhugaði að fyrirfara sér en þau hjón höfðu átt erfitt uppdráttar í einhvern tíma. Síðar hefði hann dregið orð sín til baka og talað um framtíð þeirra og sona þeirra tveggja. Hún bar einnig vitni um að Speed hefði ekki skilið eftir sjálfsvígsbréf eða önnur skilaboð.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







