Danir vilja ekki borga einir
Fyrst birt: 23.09.2012 09:41, Síðast uppfært: 23.09.2012 09:41
Stúdentar fyrir framan aðalbyggingu Kaupmannahafnarháskóla. Mynd af vef skólans.
Dönskum skólayfirvöldum þykir sem nágrannalöndin verði að taka meiri þátt í kostnaði vegna nemenda sem stunda háskólanám í Danmörku. Danir geti ekki einir borgað brúsann.
Tölur sýna að hlufall Dana sem sækja sér menntun annars staðar á Norðurlöndum er þannig að einn Dani fer á móti hverjum tíu sem koma í danska háskóla. Nú er á döfinni norrænt samkomulag og hækka á meðgjöf sem fylgir hverjum norrænum erlendum stúdent fram yfir þá Dani sem fara utan úr 22 þúsund dönskum krónum í um 30 þúsund eða tæplega 650 þúsund íslenskar krónur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












