Danir unnu - Ísland í léttari riðil

Danir fögnuðu innilega í leikslok. Mynd: Nordic Photos/AFP.

Danir lögðu Serba að velli með 21 marki gegn 19 í úrslitaleik Evrópumeistaramótsins í handbolta og urðu Evrópumeistarar. Úrslitin þýða að Íslendingar lenda í mun auðveldari riðli í keppni um sæti á Ólympíuleikunum en ella hefði verið ef Serbar hefðu orðið Evrópumeistarar.

Fyrirkomulagið í undankeppninni í handknattleik fyrir ólympíuleikanna í Lundúnum sem fram fara í sumar er talsvert flókið. Alls taka tólf lið þátt í undankeppninni sem spila í þremur riðlum en tvö lið fara áfram. Evrópsk handknattleikslið hafa á undanförnum árum borið höfuð og herðar yfir önnur lið en þrjú evrópsk lið eru í tveimur riðlum en aðeins tvö í þeim þriðja og þykir sá riðill eftirsóknarverður. Ísland fer í hann þar sem Danir unnu Serba í úrslitaleiknum í dag og leika í riðli með Króatíu, Chile og Japan.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

EM, Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku