Danir í undanúrslit - unnu Svía

Úr leik Dana og Slóvaka í riðlakeppninni - Danir eru komnir í undanúrslit

Danir unnu Svía 31-24 í lokaumferð milliriðils eitt á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu. Danir eru nú með sex stig í riðlinum og eru öruggir í undanúrslit ásamt Serbíu sem hefur sjö stig.

Þá unnu Spanverjar lið Slóveníu 35-32 í lokaumferð milliriðils tvö en Spánverjar voru þegar komnir áfram ásamt Króötum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku