Dæmi um hátt í þriðjungs skerðingu

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, segir að sambandið geri kröfu um meiri þátttöku lífeyrisþega sjálfra í stjórnun lífeyrissjóðanna. Dæmi séu um að lífeyrir hafi skerst um hátt í þriðjung eftir efnahagshrunið haustið 2008.
„Það varð aukning á árunum 1997-2007 og hún er öll farin aftur hjá flestum sjóðunum. Það eru dæmi um að réttindi sjóðsfélaga sem voru aukin á þessum árum um kannski 22%, að það er búið að taka það allt til baka aftur. Það var allt farið á árunum 2009 og 2010, því það eru alveg dæmi um 20% skerðingar á lífeyrissjóðsgreiðslum,“ segir Jóna.
Til viðbótar þessu komi að lífeyrisþegar hafi líka mátt sæta margvíslegum skerðingum hjá almannatryggingum þegar lífeyrissjóðstekjur fóru að hafa áhrif á grunnlífeyri 1. júlí 2009. „Þá misstu svo margir allan sinn grunnlífeyri á sama tíma og þeir fengu þessa kannski 20% skerðingu á lífeyrissjóðstekjum. Ég held að þetta hafi jafnvel orðið til þess að fólk var að missa 25-30% af þessum tekjum sem það hafði fyrir 2009,“ segir Jóna.
„Við munum taka þetta fyrir á næsta stjórnarfundi okkar og ræða þau viðbrögð sem við höfum. Við höfum að sjálfsögðu ekkert mjög mikil úrræði annað en að láta heyra í okkur og við höfum reyndar í mörg ár verið að gera kröfu um það að lífeyrisþegar eða þeir sem greiða í lífeyrissjóði, þeir eigi meiri aðkomu að stjórnum lífeyrissjóðanna. Það er að vísu einhversstaðar sem það er en ég held að menn hafi meiri áhrif þar,“ segir Jóna.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir var í viðtali í Morgunútvarpi Rásar tvö í morgun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Vill rannsókn á lífeyrissjóðum
Endurskoðun lífeyrissjóða tímabær





