Nítján ára Eyfirðingur hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í tíu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis brot, meðal annars líkamsárás, innbrot og þjófnað. Þá var hann dæmdur til að greiða manni tæpar fjögurhundruð þúsund krónur í miskabætur.
frettir@ruv.is