Dæmdur fyrir líkamsárás

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás.
Manninum var gefið að sök að hafa slegið annan mann hnefahöggi í andlitið fyrir utan félagsheimilið Valhöll á Eskifirði í apríl í fyrra með þeim afleiðingum að fjórar tennur ýmist brotnuðu eða losnuðu. Ákærði viðurkenndi brot sitt en krafðist sýknu á þeim forsendum að ekki hefði verið um ásetningsverk að ræða heldur ósjálfráð viðbrögð sem rekja mætti til háttsemi brotaþola en hann hafi átt upptökin að átökunum. Þeirri kröfu var hafnað.
Ákærði var einnig dæmdur til að greiða tæpar 300 þúsund krónur í sakarkostnað og til að greiða brotaþola rúmar 600 þúsund krónur í skaða- og miskabætur og málskostnað.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







