Crowe í uppáhaldi hjá Magna

Flokkar: Innlent, Mannlíf


  • Prenta
  • Senda frétt

Magni Ásgeirsson fær það vandasama hlutverk að stíga á stóra svið Gauksins strax á eftir Óskarsverðlaunahafanum Russell Crowe. Hann segist spenntur fyrir kvöldinu enda ekki á hverjum degi sem menn fá Hollywood-stjörnu til að hita upp fyrir sig.

Magni hafði heyrt af væntanlegum tónleikum Crowe sem hyggst spila nokkur lög með félaga sínum, Alan Doyle, strax á eftir flugeldasýningunni annað kvöld. Hann viðurkenndi í samtali við fréttastofu að Crowe væri í miklu uppáhaldi hjá sér. „Þetta er stórkostlegur leikari og honum er ýmislegt til lista lagt, hann verður alltaf betri og betri með árunum og mér finnst hann vera kominn í úrvaldsdeildina, hann er jú að leika Nóa,“ segir Magni.

Hann bætir því þó við að menn verði að setja alla varnagla á þótt Crowe sé allur af vilja gerður. „En mér skilst að þetta sé mikill öðlingur og að hann sé ekki þessi duttlungafulla Hollywood-stjarna. Við sjáum hvað setur, það er enn ýmislegt sem getur komið uppá.“  Magni viðurkennir að það verði eflaust skrýtið að koma fram, strax á eftir Óskarsverðlaunahafanum, og hann biður fólk um að fara ekki um leið og tónleikum Crowe lýkur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku