Colvin: „Miskunnarleysið sjúklegt“

Marie Colvin og Remi Ochlik Mynd: NordicPhotos/AFP
Alþjóða Rauði krossinn hefur farið þess á leit við stjórnvöld og uppreisnarmenn í Sýrlandi að vopn verði lögð til hliðar í tvo tíma á hverjum sólarhring þannig að hægt verði að huga að særðum þar sem mest er barist. Engar vísbendingar eru um að þetta verið samþykkt.
Rússar styðja tillögu Rauða krossins. Frakkar vilja hins vegar fara aðra leið og afmarka varanlegt griðasvæði. Rússar segja að erfitt verði að framfylgja því.
Sprengjum hefur ringt yfir Homs í dag. Fleiri en fjörutíu hafi fallið i gær og tuttugu og sjö í dag. Þar á meðal tveir vestrænir blaðamenn, bandaríska blaðakonan Marie Colvin, sem starfaði hjá breska blaðinu Sunday Times, og franski verðlaunaljósmyndarinn Remi Ochlik.
Sprengju var varpað á bráðabirgðasjúkrahús í Baba Amr hverfinu í Homs þar sem þau voru. Colvin lýsti hræðilegu ástandi í borginni aðeins sólarhring áður en hún lést.
„Sýrlendingar leyfa óbreyttum borgurum ekki að fara. Hver sá sem fer út á götu; verði hann ekki fyrir sprengju, þá er skotið á hann. Leyniskyttur eru út um allt við Baba Amr, í háhýsunum, og miskunnarleysið er fullkomlega sjúklegt. Það er skotið gegndarlaust á íbúðarhúsnæði án tillits til nokkurs hlutar í linnulausum árásum.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Liðsauki og skriðdrekar til Homs
Linnulausar árásir á Homs





