City efst með tveggja stiga forystu

Joleon Lescott skoraði mark City í síðari hálfleik

25. umferð ensku úrvaldeildarinnar í knattspyrnu lauk í dag með tveimur leikjum. Manchester City vann 1-0 sigur á Aston Villa og Eggert Gunnþór Jónsson var allan leikinn á bekknum hjá Wolves sem tapaði 5-1 fyrir West Bromwich Albion.

Manchester City komst þar með í 60 stig og er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með tveggja stiga forskot á Manchester United sem er í öðru sæti með 58 stig. Tottenham fylgir fast á eftir með 53 stig, Arsenal og Chelsea koma næst með 43 stig, Newcastle er í sjötta sæti með 42 stig og Liverpool í því sjöunda með 39 stig.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku