Byrjað að fjarlægja PIP brjóstapúða
Fyrst birt: 20.02.2012 12:09, Síðast uppfært: 20.02.2012 12:22

Skurðaðgerðir vegna brottnáms PIP brjóstapúða hófust á Landspítalanum í morgun.
154 konur hafa leitað til Krabbameinsfélags Íslands og farið í ómskoðun vegna PIP-brjóstafyllinga. 89 þeirra, eða 58 prósent, hafa greinst með leka púða. Þetta kemur fram á vef Landlæknisembættisins. Fyrr í mánuðinum höfðu 105 konur leitað til Krabbameinsfélagsins og 68 prósent þeirra reyndust vera með leka púða. Tíðni þeirra sem eru með leka púða hefur því lækkað.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







