Buducnost Podgorica Evrópumeistari

Heidi Löke og félagar hennar í Györ urðu að sætta sig við tap í úrslitunum í Meistaradeild Evrópu
Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi varð í fyrradag Evrópumeistari kvenna í handknattleik með sigri á ungverska liðinu Györ í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Györ, sem er undir stjórn Norðmannsins Karl Erik Böhn og norsku landsliðskonurnar Heidi Löke og Katrine Lunde Haraldsen spila með, vann fyrri leik liðanna með tveimur mörkum, 29-27, á heimavelli sínum. Buducnost vann síðan seinni leikinn líka með tveggja marka mun, 27-25, í fyrradag og liðin skildu því jöfn samanlagt, 54-54. En þar sem Buducnost skoraði fleiri mörk á útivelli tryggði liðið sér Evrópumeistaratitilinn. Katarina Bulatovic var markahæst í liði Buducnost með níu mörk og Radmila Miljanic skoraði sjö. Hjá Györ var Anita Görbicz markahæst með níu mörk og hún varð markadrottning Meistaradeildarinnar í ár.
Í Evrópukeppni bikarhafa vann ungverska liðið Rail Cargo Hungaria Viborg frá Danmörku, 31-30 í báðum leikjunum og því samanlagt 62-60 í leikjunum tveimur. Í áskorendakeppni kvenna vann franska liðið HAC frá Le Havre tyrkneska liðið Muratpasa Belediyesi. HAC tapaði að vísu heimaleik sínum, 30-27, en vann fyrri leikinn á útivelli, 36-27, og því samanlagt, 63-57. Þetta er annað árið í röð sem Muratpasa Belediyesi tapar fyrir frönsku liði í úrslitum keppninnar, en Mios Biganos varð meistari í fyrra.
Og í Evrópubikarnum, EHF keppninni, sigraði Lada frá Rússlandi rúmenska liðið H.C. Zalau í úrslitunum, 51-44. Lada vann fyrri leikinn á heimavelli, 30-24, og seinni leikinn á útivelli 21-20.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













