Bryti páfa sakaður um leka

Paolo Gabriele bryti ásamt Benedikt XVI páfa. Mynd: RAI
Bryti Benedikts páfa XVI, Paolo Garbriele að nafni, hefur verið settur í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á að ýmsum viðkvæmum upplýsingum úr Páfagarði hefur verið lekið í fjölmiðla að undanförnu.
Nefnd sem páfi skipaði til að rannsaka upplýsingalekann komst að þeirri niðurstöðu að brytinn hefði hnuplað ýmsum leyniskjölum og komið þeim út fyrir múra Páfagarðs. Í þeim koma fram upplýsingar um meinta spillingu, óstjórn og ágreining hátt settra kirkjunnar manna. Paolo Gabriele hefur verið náinn samstarfs- og aðstoðarmaður Benedikts páfa og einn fárra sem hafði aðgang að einkahíbýlum hans. Ítalskir fjölmiðlar hafa greint frá því að mikið af leyniskjölum hafi fundist í íbúð brytans og í dag staðfesti talsmaður Páfagarðs að Paolo Gabriele væri í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Dómara hefur verið falið að athuga hvort brotið sé svo alvarlegt að brytinn verði ákærður. Fari svo að hann verði sakfelldur getur hann fengið allt að þrjátíu ára fangelsisdóm fyrir að hafa með ólögmætum hætti komist yfir skjöl sem tilheyra þjóðhöfðingja Páfagarðs, það er Benedikt páfa. Þar sem ekkert fangelsi er í Páfagarði yrði hann að afplána dóminn á Ítalíu samkvæmt samkomulagi ríkjanna. Mál þetta hefur vakið mikla athygli á Ítalíu og mikið verið fjallað um það í fjölmiðlum, sem kalla það Vatileaks.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













